








Hjartagull Hálsmen - Neistinn
Hjartagull Hálsmen - Neistinn
- Regular price
- 6.900 ISK
- Regular price
-
- Sale price
- 6.900 ISK
- Unit price
- per
7.febrúar hefst árleg vitundarvika Neistans. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til er Neistinn styrktarfélag hjartveikra barna á Íslandi. Markmiðið međ þessari vitundarviku er auðvitað að auka vitund okkar allra á þessu málefni en einnig að safna smá pening til að geta stutt viđ bakið à litlum hjartahetjum og fjölskyldum þeirra.
Það er mér mikill heiður að fá nú í annað sinn láta eitthvað gott af mér leiða og styrkja þessi mikilvægu samtök. Vikuna 7. til 14.feb rennur því allur ágóði af sölu nýju Hjartagull hálsmenanna frà EddóDesign til Neistans.
Líkt og í hinum sígilda Hjartagull hring er baugurinn sjálfur úr 925S silfri međ hamraðri áferð. Hann er umþaðbil 12mm í þvermál. Á hverjum baug kùrir svo lítil sæt 14k gullkúla. Menið kemur á 45cm silfurkeðju.
Öll hálsmenin eru handsmíðuð og einstök.
Núna er algerlega tilvalið að kaupa sér hálsmen í stíl við hringinn sinn. Einnig eru þetta fullkomin og kærleiksrík gjöf fyrir stóra sem smáa. Hversu frábært að geta glatt hjartagullið sitt og styrkt svona gott málefni í leiðinni.
Hjartans kveđjur ! ❤️
Erla
EddóDesign
Ath ! Að vegna frábærra viðtakna lengist venjulegur vinnsutími á pöntunum. Þakka skilning og þolinmæðina ❤️ Endilega sendið á mig skilaboð ef einhverjar spurningar vakna.
Couldn't load pickup availability